Við erum bæði stolt og þakklát yfir að hafa hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki Kringlunnar annað árið í röð. Þetta þýðir að við hlutum fullt hús stiga í þjónustukönnun sem framkvæmd er á vegum Kringlunnar, bæði fyrir frábæra þjónstu sem og útlit og aðkomu kaffihússins. Markmið okkar er og verður áfram að veita frábæra þjónustu og viðurkenning sem þessi gefur okkur aukinn kraft í að halda áfram á sömu braut. Til hamingju við!!

Viðurkenning 2017