Við kynnum með stolti nýjasta meðlim Café Roma teymisins: Romulo. Hann er ástríðufullur kaffiunnandi og er alltaf með bolla sér við loppu. Hann mun einkum koma til með að vinna við rannsóknir á gæðakaffi og ferðast um heiminn til að kynna sér mismunandi kaffimenningu. Við eigum vonandi eftir að fá að sjá skemmtilegar myndir af Romulo litla að njóta bollans á framandi stöðum. Hægt verður að fylgjast með honum á Instagram og Facebook. Velkominn Romulo!

Romulo