Við erum afar stolt yfir að hafa hlotið, þriðja árið í röð, viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki Kringlunnar. Það þýðir að í árlegri þjónustukönnun sem framkvæmd er á vegum Kringlunnar náðum við fullu húsi stiga. Við fengum fínan bikar að launum sem sem við stilltum auðvitað stolt upp á kaffihúsinu okkar. Viðurkenningin endurspeglar einfaldlega það sem við stöndum fyrir – að gefa óaðfinnanlega þjónustu – alltaf!

 

Framúrskarandi fyrirtæki 2018